Sálmur 98:1–9

  • Jehóva bjargar og dæmir af réttlæti

    • Björgunarverk Jehóva kunngert (2, 3)

Söngljóð. 98  Syngið nýjan söng fyrir Jehóvaþví að verk hans eru stórkostleg. Hann hefur séð fyrir björgun* með hægri hendi sinni, heilögum handlegg sínum.   Jehóva hefur kunngert björgunarverk sitt,hann hefur opinberað þjóðunum réttlæti sitt.   Hann man eftir tryggum kærleika sínum og trúfesti við hús Ísraels. Öll endimörk jarðar hafa séð björgunarverk* Guðs okkar.   Hrópið sigrandi til Jehóva, allir jarðarbúar. Gleðjist, hrópið fagnandi og syngið lofsöng.*   Syngið Jehóva lofsöng við hörpuleik,*með hörpu og hljómfögrum söng.   Blásið í lúðra og horn,hrópið sigurglöð frammi fyrir konunginum Jehóva.   Hafið drynji og allt sem í því er,jörðin* og þeir sem á henni búa.   Árnar klappi saman lófunum,fjöllin hrópi fagnandi saman   frammi fyrir Jehóva því að hann kemur* til að dæma jörðina. Hann dæmir heimsbyggðina með réttlætiog þjóðirnar af sanngirni.

Neðanmáls

Eða „unnið sigur“.
Eða „sigur“.
Eða „leikið tónlist“.
Eða „Leikið fyrir Jehóva á hörpu“.
Eða „frjósamt landið“.
Eða „er kominn“.