Hoppa beint í efnið

Hvernig líta Vottar Jehóva á hjónaskilnað?

Hvernig líta Vottar Jehóva á hjónaskilnað?

 Við höfum sömu afstöðu og Biblían til hjónabands og skilnaðar. Guð stofnaði hjónabandið sem varanlegt samband karls og konu. Samkvæmt Biblíunni er eina gilda ástæðan fyrir hjónaskilnaði kynferðislegt siðleysi. – Matteus 19:5, 6, 9.

Hjálpa vottarnir hjónum sem eiga í erfiðleikum í hjónabandinu?

 Já, með ýmsum hætti:

  •   Rit. Reglulega er gefið út efni sem getur styrkt hjónabandið, jafnvel þegar vandamálin virðast óleysanleg. Skoðaðu greinar eins og „Að vera skuldbundinn maka sínum” og „Að byggja upp traust á ný”.

  •   Samkomur. Við ræðum hagnýt ráð um hjónabandið sem er að finna í Biblíunni. Slík umræða fer fram á safnaðarsamkomum og mótum.

  •   Öldungar. Safnaðaröldungar veita hjónum aðstoð og benda þeim á biblíuvers eins og Efesusbréfið 5:22-25.

Þarf vottur að fá samþykki öldunga safnaðarins til að skilja við maka sinn?

 Nei. Jafnvel þegar öldungar eru beðnir um að hjálpa þeim sem eiga í erfiðleikum í hjónabandinu, hafa þeir ekki heimild til að segja þeim hvað þau ættu að gera. (Galatabréfið 6:5) Ef einhver kýs að skilja án þess að hafa gilda, biblíulega ástæðu, er honum eða henni hins vegar ekki frjálst, samkvæmt Biblíunni, að giftast aftur. – 1. Tímóteusarbréf 3:1, 5, 12.

Hvernig líta vottarnir á samvistarslit?

 Í Biblíunni eru hjón hvött til að slíta ekki samvistum þótt aðstæður séu ekki þær bestu. (1. Korintubréf 7:10-16) Leysa má mörg vandamál með einlægri bæn, með því að fara eftir leiðbeiningum Biblíunnar og sýna kærleika. – 1. Korintubréf 13:4-8; Galatabréfið 5:22.

 Í ýtrustu neyð hafa sumir þjónar Guðs ákveðið að slíta samvistum við maka sinn. Dæmi:

  •   Vísvitandi vanræksla á framfærsluskyldu. – 1. Tímóteusarbréf 5:8.

  •   Alvarlegt ofbeldi. – Sálmur 11:5.

  •   Trúarlegri velferð stofnað í hættu. Annað hjónanna reynir ef til vill að fá maka sinn til að brjóta lög Guðs. Makinn sem verður fyrir því gæti þá ákveðið að samvistarslit sé eina leiðin til að geta hlýtt Guði framar en mönnum. – Postulasagan 5:29.