Bréfið til Galatamanna 6:1–18

  • Berið hvert annars byrðar (1–10)

    • Menn uppskera eins og þeir sá (7, 8)

  • Umskurður hefur ekkert gildi (11–16)

    • Ný sköpun (15)

  • Niðurlagsorð (17, 18)

6  Bræður, ef einhver fer út af sporinu án þess að átta sig á því skuluð þið sem eruð þroskaðir í trúnni* reyna að leiðrétta hann mildilega. En hafðu gát á sjálfum þér svo að þú freistist ekki líka.  Berið hvert annars byrðar og uppfyllið þannig lög Krists.  Sá sem heldur sig vera eitthvað en er þó ekkert blekkir sjálfan sig.  En hver og einn ætti að rannsaka eigin verk án þess að bera sig saman við aðra. Þá hefur hann ástæðu til að gleðjast yfir því sem hann gerir sjálfur.  Hver og einn þarf að bera sína byrði.*  Allir sem fá fræðslu* um orðið skulu veita þeim sem kennir hlutdeild með sér í öllum gæðum.  Látið ekki blekkjast: Menn villa ekki um fyrir Guði því að það sem maður sáir, það uppsker hann.  Sá sem sáir eins og holdið vill uppsker glötun af holdinu en sá sem sáir eins og andinn vill uppsker eilíft líf af andanum.  Gefumst ekki upp á að gera það sem er gott því að á sínum tíma munum við uppskera ef við missum ekki móðinn.* 10  Við skulum því gera öllum gott meðan við höfum tækifæri* til en þó sérstaklega trúsystkinum okkar. 11  Þið takið eftir með hve stórum stöfum ég skrifa ykkur með eigin hendi. 12  Þeir sem vilja líta vel út í augum annarra* reyna að þröngva ykkur til að láta umskerast. Þeir gera það aðeins til að þurfa ekki að þola ofsóknir fyrir kvalastaur* Krists. 13  Þeir sem láta umskerast halda ekki einu sinni sjálfir lögin heldur vilja þeir að þið látið umskerast til að geta stært sig af því sem er gert við líkama ykkar. 14  En aldrei vil ég stæra mig af öðru en kvalastaur* Drottins okkar Jesú Krists. Vegna Krists er heimurinn dáinn* gagnvart mér og ég gagnvart heiminum. 15  Það skiptir engu hvort maður er umskorinn eða óumskorinn. Það sem máli skiptir er að vera ný sköpun. 16  Megi friður og miskunn vera með öllum sem lifa eftir þessari meginreglu, já, með Ísrael Guðs. 17  Ég bið ykkur að valda mér ekki erfiðleikum framar því að ég ber á líkama mínum brennimerki sem þræll Jesú. 18  Bræður og systur, megi Drottinn okkar Jesús Kristur í einstakri góðvild sinni blessa það hugarfar sem þið sýnið. Amen.

Neðanmáls

Eða „fylgið leiðsögn heilags anda“.
Eða „ábyrgð“.
Eða „munnlega kennslu“.
Eða „gefumst ekki upp“.
Orðrétt „tíma“.
Eða „í holdinu“.
Sjá orðaskýringar.
Sjá orðaskýringar.
Eða „staurfestur“.