Hoppa beint í efnið

Getur Satan djöfullinn stjórnað fólki?

Getur Satan djöfullinn stjórnað fólki?

Svar Biblíunnar

 Satan djöfullinn og illir andar hafa svo mikil áhrif á mannkynið að Biblían segir: „Allur heimurinn er á valdi hins vonda.“ (1. Jóhannesarbréf 5:19) Biblían bendir á aðferðir sem Satan notar til að hafa áhrif á fólk.

  •   Blekking. Biblían hvetur kristna menn til að vera viðbúna svo að þeir geti „staðist vélabrögð djöfulsins“. (Efesusbréfið 6:11) Eitt af brögðum hans er að telja fólki trú um að útsendarar hans séu þjónar Guðs. – 2. Korintubréf 11:13-15.

  •   Andatrú. Satan villir um fyrir fólki með því að nota miðla, spákonur og þá sem stunda kukl eða stjörnuspeki. (5. Mósebók 18:10-12) Annað sem getur einnig gert fólk berskjaldað fyrir áhrifum illra anda er eiturlyfjaneysla, dáleiðsla og hugleiðslutækni. – Lúkas 11:24-26.

  •   Falstrú. Trúfélög og kirkjudeildir, sem kenna falskar kenningar, fá fólk til að fara ekki eftir því sem Guð segir. (1. Korintubréf 10:20) Í Biblíunni eru slíkar falskenningar kallaðar ‚lærdómar illra anda‘. – 1. Tímóteusarbréf 4:1.

  •   Andseta. Í Biblíunni er sagt frá einstaklingum sem voru haldnir illum öndum. Illir andar höfðu vald yfir þeim. Stundum var þetta fólk slegið blindu eða málleysi og það stundaði jafnvel sjálfsmeiðingar. – Matteus 12:22; Markús 5:2-5.

Hvernig er hægt að forðast áhrif Satans?

 Þú þarft ekki að lifa í stöðugum ótta við að verða fyrir áhrifum illra anda því að Biblían sýnir hvernig þú getur staðið gegn Satan með góðum árangri:

  •    Lærðu að þekkja aðferðir Satans svo að þér sé ekki „ókunnugt um vélráð hans“. – 2. Korintubréf 2:11.

  •    Aflaðu þér biblíuþekkingar og farðu síðan eftir því sem þú lærir. Það verndar þig fyrir áhrifum Satans að fara eftir meginreglum Biblíunnar. – Efesusbréfið 6:11-18.

  •    Losaðu þig við allt sem tengist andatrú, þar á meðal tónlist, bækur, tímarit, veggspjöld og myndbönd sem ýta undir andatrúariðkun. – Postulasagan 19:19.