Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Undir stjórn ríkis Guðs mun fólk „gleðjast yfir miklu gengi“. – Sálmur 37:11.

Hverju svarar Biblían?

Hverju svarar Biblían?

Getur Biblían hjálpað okkur að takast á við áhyggjur og kvíða?

Hvað myndir þú segja?

  • Já.

  • Nei.

  • Það má vera.

Hvað segir Biblían?

„Varpið allri áhyggju ykkar á [Guð] því að hann ber umhyggju fyrir ykkur.“ (1. Pétursbréf 5:7) Biblían fullvissar okkur um að Guð geti létt af okkur áhyggjum.

Fleiri upplýsingar úr Biblíunni

  • Með því að biðja getum við eignast ,frið Guðs‘ sem linar áhyggjur og kvíða. – Filippíbréfið 4:6, 7.

  • Að lesa í orði Guðs getur auk þess hjálpað okkur að takast á við streitu. – Matteus 11:28-30.

Verða áhyggjur nokkurn tíma úr sögunni?

Sumir halda ... að áhyggjur og streita séu einfaldlega hluti af mannlífinu og aðrir telja að maður losni ekki við áhyggjur fyrr en í næsta lífi. Hvað heldur þú?

Hvað segir Biblían?

Guð afmáir allt sem veldur áhyggjum og kvíða. Hann segir: „Dauðinn mun ekki framar til vera, hvorki harmur né vein né kvöl er framar til.“ – Opinberunarbókin 21:4.

Fleiri upplýsingar úr Biblíunni