Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Hjálp handa fórnarlömbum heimilisofbeldis

Hjálp handa fórnarlömbum heimilisofbeldis

„Ofbeldi gegn konum er heilbrigðisvandamál sem nær um alla jörð og má líkja við faraldur sem er brýnt að stöðva,“ að sögn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Stofnunin áætlar að allt að 30 prósent „allra kvenna sem hafa verið í ástarsambandi hafa orðið fyrir líkamlegu og/eða kynferðislegu ofbeldi“ af hendi maka síns. Og í skýrslu Sameinuðu þjóðanna kemur fram að nýlega voru á einu ári 137 konur drepnar á dag einhvers staðar í heiminum af maka sínum eða öðrum í fjölskyldunni. a

Tölfræðilegar upplýsingar geta sýnt hve stórt vandamál heimilisofbeldi er en þær segja ekkert um þann tilfinningalega og líkamlega sársauka sem fórnarlömbin mega þola.

Ert þú fórnarlamb heimilisofbeldis? Eða þekkirðu einhvern sem er það? Ef svo er skaltu skoða eftirfarandi atriði úr Biblíunni sem geta hjálpað.

 Það er ekki þér að kenna ef maki þinn beitir þig ofbeldi

 Þú getur fengið hjálp

 Þú ert ekki ein

 Heimilisofbeldi mun taka enda

 Hvernig getur þú hjálpað fórnarlambi heimilisofbeldis?

 Það er ekki þér að kenna ef maki þinn beitir þig ofbeldi

Hvað segir Biblían? ‚Við þurfum öll að standa Guði reikningsskap gerða okkar.‘ – Rómverjabréfið 14:12.

Mundu þetta: Sá sem beitir þig ofbeldi er ábyrgur gerða sinna.

Ef maki þinn kennir þér um ofbeldið sem hann beitir þig hefur hann rangt fyrir sér. Eiginkonur eiga skilið að vera sýnd ást en ekki að vera beittar ofbeldi. – Kólossubréfið 3:19.

Stundum getur það sem ofbeldismaður gerir komið til vegna persónuleikaröskunar, uppeldis eða misnotkunar áfengis. En þótt svo sé er hann ábyrgur gagnvart Guði fyrir framkomu sína gagnvart þér. Og hann ber ábyrgð á að gera það sem þarf til að breyta hegðun sinni.

 Þú getur fengið hjálp

Hvað segir Biblían? ‚Ef margir leggja á ráðin rætast áformin.‘ – Orðskviðirnir 15:22.

Mundu þetta: Ef þú finnur til óöryggis eða veist ekki hvað þú átt að gera geta aðrir hjálpað þér.

Hvers vegna gætirðu þurft hjálp frá öðrum? Ef þú ert fórnarlamb heimilisofbeldis ertu að glíma við alls konar hugsanir. Það getur verið erfitt að ákveða hvað er best að gera því þú veist ekki hvert eftirtalinna atriða er mikilvægast:

  • Þitt eigið öryggi.

  • Það sem er best fyrir börnin þín.

  • Fjárhagsstaða þín.

  • Ást þín til maka þíns.

  • Löngunin til að varðveita sambandið við maka þinn ef hann breytir um hegðun.

Það er eðlilegt að þú vitir ekki hvað þú átt að gera og finnist ástandið yfirþyrmandi. Hvar geturðu fengið hjálp?

Traustur vinur eða einhver í fjölskyldunni gæti veitt ráð og tilfinningalegan stuðning. Það getur hjálpað mikið að tala við einhvern sem er annt um þig.

Með því að hringja í neyðarsíma fyrir fórnarlömb heimilisofbeldis er hægt að fá skjótan stuðning. Þar geturðu fengið hjálp til að tryggja öryggi þitt. Ef maki þinn viðurkennir vandamál sitt og vill gera breytingar gæti Neyðarlínan mögulega gefið honum ráð.

Önnur neyðarúrræði geta komið að gagni ef þú ert í skyndilegri hættu, eins og læknar, hjúkrunarfólk eða aðrir sérþjálfaðir fagaðilar.

 Þú ert ekki ein

Hvað segir Biblían? „Jehóva b er nálægur þeim sem hafa sundurmarið hjarta, hann hjálpar þeim sem hafa sundurkraminn anda.“ – Sálmur 34:18, New World Translation.

Mundu þetta: Guð lofar að hjálpa þér.

Jehóva er innilega annt um þig. (1. Pétursbréf 5:7) Hann skilur innstu hugsanir þínar og tilfinningar. Hann getur veitt þér huggun í orði sínu, Biblíunni. Og hann hvetur þig til að biðja til sín. Þegar þú biður til hans geturðu beðið hann um visku og styrk til að takast á við aðstæður þínar. – Jesaja 41:10.

 Heimilisofbeldi mun taka enda

Hvað segir Biblían? „Þá munu menn sitja óhræddir, hver undir sínum vínviði eða fíkjutré.“ – Míka 4:4.

Mundu þetta: Í Biblíunni er lofað að sá tími komi brátt þegar heimilið verður friðsæll staður fyrir alla.

Jehóva Guð hefur einu varanlegu lausnina við öllum vandamálum okkar. Í Biblíunni er lofað: „Hann mun þerra hvert tár af augum þeirra. Og dauðinn mun ekki framar til vera, hvorki harmur né vein né kvöl er framar til.“ (Opinberunarbókin 21:4) Þá munu jafnvel vondar minningar vera horfnar og góðar minningar komnar í þeirra stað. (Jesaja 65:17) Þetta er sú friðsæla framtíð sem stendur þér til boða samkvæmt Biblíunni.

a Í þessari grein er talað um fórnarlambið sem konu en margt af því sem er fjallað um á einnig við um karlkyns fórnarlömb.

b Jehóva er nafn Guðs samkvæmt frummálum Biblíunnar.