Hoppa beint í efnið

Hver stjórnar heiminum?

Hver stjórnar heiminum?

Heldurðu að það sé ...

  • Guð?

  • mennirnir?

  • einhver annar?

HVAÐ SEGIR BIBLÍAN?

„Allur heimurinn er á valdi hins vonda.“ – 1. Jóhannesarbréf 5:19, Nýheimsþýðingin.

„Sonur Guðs birtist til að brjóta niður verk Djöfulsins.“ – 1. Jóhannesarbréf 3:8.

HVAÐ ÞÝÐIR ÞAÐ FYRIR ÞIG?

Það er rökrétt skýring á erfiðleikunum í heiminum. – Opinberunarbókin 12:12.

Það gefur þér ástæðu til að trúa að heimurinn eigi eftir að batna. – 1. Jóhannesarbréf 2:17.

ER HÆGT AÐ TREYSTA ÞVÍ SEM BIBLÍAN SEGIR?

Já, og ástæðurnar eru að minnsta kosti þrjár:

  • Yfirráð Satans taka bráðlega enda. Jehóva Guð er staðráðinn í að binda enda á yfirráð Satans yfir mannkyni. Jehóva hefur lofað að gera hann að engu og bæta að fullu allt það tjón sem hann hefur valdið. – Hebreabréfið 2:14.

  • Guð hefur valið Jesú Krist til að stjórna heiminum. Jesús er alger andstæða hins grimma og eigingjarna stjórnanda sem er við völd núna. Guð segir um konunginn Jesú: „Hann miskunnar sig yfir bágstadda og snauða ... frá ofbeldi og ofríki leysir hann þá.“ – Sálmur 72:13, 14, Biblían 2010.

  • Guð segir ekki ósatt. Í Biblíunni stendur einfaldlega: „Guð getur ekki logið.“ (Hebreabréfið 6:18, Nýheimsþýðingin) Jehóva stendur alltaf við loforð sín. (Jesaja 55:10, 11) Eitt þeirra er að „stjórnanda þessa heims“ verði „kastað út“. – Jóhannes 12:31.

TIL UMHUGSUNAR

Hvernig verður heimurinn eftir að stjórnandi hans er tekinn úr umferð?

Svar Biblíunnar er að finna í SÁLMI 37:10, 11 og OPINBERUNARBÓKINNI 21:3, 4.