Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

FORSÍÐUEFNI

Klám – skaðlaus skemmtun eða banvænt eitur?

Klám – skaðlaus skemmtun eða banvænt eitur?

Heimurinn er gegnsýrður klámi. a Það er að finna í auglýsingum, tísku, kvikmyndum, tónlist, tímaritum, tölvuleikjum, mynddeilingarþjónustu á netinu, í sjónvarpinu og það er aðgengilegt í snjalltækjum. Klám virðist almennt viðurkennt í samfélaginu. Sífellt fleira fólk á sífellt fleiri stöðum horfir á meira klám en nokkru sinni fyrr í sögu mannkyns. – Sjá rammagreinina „ Staðreyndir um klám“.

Innihald klámsins hefur líka breyst. Prófessor Gail Dines segir: „Myndirnar eru orðnar svo djarfar að það sem áður var talið svæsið klám er nú orðið ,venjulegt‘ klám.“

Hvað finnst þér um þessa þróun? Er klám saklaus afþreying, banvænt eitur, eða er það eitthvað þar á milli? Jesús sagði: „Hvert gott tré ber sömuleiðis góða ávexti en fúið tré vonda.“ (Matteus 7:17) Hvaða ávöxt ber klám? Skoðum nokkrar lykilspurningar til að finna svarið.

Hvaða áhrif hefir klám á notandann?

ÞAÐ SEM SÉRFRÆÐINGAR SEGJA: Klám er ákaflega vanabindandi. Sumir rannsóknarmenn og meðferðarsérfræðingar líkja þessari fíkn við krakkfíkn.

Brian b var háður netklámi. Hann segir: „Ekkert gat stoppað mig. Mér leið eins og ég væri í eins konar leiðslu. Ég hristist allur og fékk mikinn höfuðverk. Ég barðist við að hætta en árum síðar var ég enn háður.“

Þeir sem horfa á klám fara oft á tíðum leynt með það sem þeir gera og grípa þess vegna oft til blekkinga. Margir glíma við tilfinningar eins og einangrun, skömm, kvíða, þunglyndi og reiði. Sumir fá jafnvel sjálfsvígshugsanir. „Ég varð sjálfhverfur og örvæntingafullur,“ segir Serge, sem skoðaði klám í farsímanum nánast daglega. „Mér fannst ég einskis virði og ég hafði slæma samvisku. Ég var einmana og kominn í sjálfheldu. Ég var hræddur og skammaðist mín of mikið til að leita mér hjálpar.“

Jafnvel klámáhorf sem stendur stutt eða maður rekst á fyrir tilviljun getur haft slæm áhrif. Dr. Judith Reisman er virtur rannsóknarmaður með klám sem sérsvið. Hún sagði þegar hún bar vitni fyrir öldungadeildarnefnd Bandaríkjaþings: „Klámfengnar myndir greypast í heilann og breyta honum. Þær mynda ósjálfrátt og samstundis varanlegt lífefnafræðilegt spor í minninu [sem er] erfitt að losa sig við eða jafnvel ekki hægt.“ Susan, sem er 19 ára, rakst fyrir tilviljun á klámfengnar vefsíður. Hún segir: „Myndirnar eru greyptar í hugann. Þær skjóta upp kollinum fyrirvaralaust. Mér finnst eins og ég geti aldrei losnað alveg við þær.“

KJARNI MÁLSINS: Klám gerir notendurna að þrælum og skaðar þá. – 2. Pétursbréf 2:19.

Hvaða áhrif hefur klám á fjölskyldur?

ÞAÐ SEM SÉRFRÆÐINGAR SEGJA: „Klám leggur hjónabönd og fjölskyldur í rúst.“ – The Porn Trap, eftir Wendy og Larry Maltz.

Klám eyðileggur hjónabönd og fjölskyldur vegna þess að það

Biblían segir að hjón eigi ekki að ,bregða trúnaði‘ hvort við annað. (Malakí 2:16) Framhjáhald er trúnaðarbrestur sem getur eyðilagt hjónabandið og leitt til skilnaðar. Og þegar slitnar upp úr hjónabandinu skaðar það börnin í fjölskyldunni.

Klám getur líka skaðað börnin með beinni hætti. Brian, sem vitnað er í áður, segir: „Þegar ég var tíu ára rakst ég á klámblöð föður míns meðan ég var í feluleik. Ég laumaðist til að kíkja í þau en skildi ekki af hverju mér fannst spennandi að horfa á slíkar myndir. Það var upphafið að vítahring sem ég var enn fastur í löngu eftir að ég var orðinn fullorðinn.“ Rannsóknir sýna að klám getur haft þau áhrif að unglingar byrji að stunda kynlíf fyrr en ella, verði lauslátir, beiti kynferðisofbeldi og verði í ójafnvægi tilfinningalega og hugarfarslega.

KJARNI MÁLSINS: Klám eitrar kærleiksrík sambönd og hefur í för með sér þjáningar og sársauka. – Orðskviðirnir 6:27.

Hvað segir Biblían um klám?

ORÐ GUÐS SEGIR: „Deyðið þess vegna … tilhneigingar sem búa í líkama ykkar: kynferðislegt siðleysi, óhreinleika, taumlausan losta, skaðlegar fýsnir og ágirnd, en hún er það sama og skurðgoðadýrkun.“ – Kólossubréfið 3:5.

Jehóva c Guð hatar einfaldlega klám. En hann fordæmir ekki kynlíf. Hann gaf okkur kynhvötina til að hjón gætu notið kynlífs, styrkt tilfinningalegu böndin sín á milli og upplifað þá stórkostlegu reynslu að eignast börn. – Jakobsbréfið 1:17.

Hvernig getum við verið viss um að Guð hatar klám? Hugleiddu eftirfarandi ástæður:

KJARNI MÁLSINS: Klám skemmir samband manns við Jehóva. – Rómverjabréfið 1:24.

En Jehóva hefur samúð með þeim sem vilja losna úr greipum kláms. Biblían segir: „Náðugur og miskunnsamur er Drottinn, þolinmóður og mjög gæskuríkur. Því að hann þekkir eðli vort, minnist þess að vér erum mold.“ (Sálmur 103:8, 14) Hann býður auðmjúkum mönnum að leita til sín og ,njóta miskunnar hans og góðvildar þegar þeir eru hjálparþurfi‘. – Hebreabréfið 4:16; sjá rammagreinina „ Að losna undan klámi“.

Ótal margir hafa þegið hjálp Guðs. Virkar hjálp hans? Taktu eftir því sem Biblían segir um suma sem sigruðust á slæmum venjum: „Þið hafið hreinsast, þið hafið helgast, þið eruð lýstir réttlátir í nafni Drottins Jesú Krists og með anda Guðs okkar.“ (1. Korintubréf 6:11) Þeir geta tekið undir með Páli: „Ég get tekist á við hvað sem er vegna hans sem gefur mér kraft.“ – Filippíbréfið 4:13.

Susan sigraðist á klámfíkninni. Hún segir: „Jehóva er sá eini sem getur hjálpað manni inn á rétta braut aftur. Ef maður biður hann um hjálp og leiðsögn er hægt að verða hreinn í augum hans. Hann bregst manni ekki.“

a Með hugtakinu „klám“ er átt við kynferðislegt efni sem er gert til að vekja upp kynferðislegar langanir þess sem horfir á, les eða hlustar. Það getur verið í formi mynda, texta eða hljóðupptaka.

b Nöfnum hefur verið breytt.

c Jehóva er nafn Guðs samkvæmt frummálum Biblíunnar.