Hoppa beint í efnið

Hver er uppruni hrekkjavökunnar?

Hver er uppruni hrekkjavökunnar?

Svar Biblíunnar

 Það er ekkert minnst á hrekkjavöku í Biblíunni, þessa hátíð sem margir halda upp á 31. október á hverju ári. En forn uppruni og siðir hrekkjavökunnar (líka kölluð allraheilagramessa) stangast á við kenningar Biblíunnar.

Í þessari grein:

 Saga og siðir hrekkjavökunnar

  •  Samhain: Uppruna hrekkjavöku má rekja aftur til „fornrar heiðinnar athafnar sem Keltar héldu hátíðlega fyrir rúmlega 2.000 árum,“ segir í fræðiritinu The World Book Encyclopedia. „Keltar trúðu að á meðan Samhainhátíðin stóð yfir gætu hinir dánu gengið á meðal þeirra og að hinir lifandi gætu átt samskipti við þá.“ – Sjá „ Hvers vegna er hún kölluð allraheilagramessa?

  •  Hrekkjavökubúningar, sælgæti, gjafir og hrekkir: Samkvæmt uppflettiriti klæddust sumir Keltarnir draugabúningum svo að andarnir „héldu að þeir væru líka framliðnir“ og myndu þess vegna láta þá í friði. Aðrir buðu öndunum upp á sælgæti til að friða þá. a

     Í Evrópu á miðöldum tók kaþólska kirkjan heiðna siði hvers lands upp á sína arma. Í þessu tilfelli lét hún fylgjendur sína klæðast búningum og fara hús úr húsi og betla smá gjafir.

  •   Draugar, vampírur, varúlfar, nornir og uppvakningar: Þessi fyrirbæri hafa lengi verið tengd við heim illra anda. Bókin Halloween Trivia segir að svona „yfirnáttúrulegar ófreskjur“ séu „nátengdar dauðanum, hinum dánu og ótta við dauðann“.

  •   Hrekkjavökugrasker eða -luktir: Í Bretlandi á miðöldum „fór fólk hús úr húsi og bauðst til að biðja fyrir hinum dánu í skiptum fyrir mat“. Menn gengu með „rófur sem voru holaðar að innan sem luktir, kertið innan í þeim táknaði sálir sem voru fastar í hreinsunareldi“. (Halloween – From Pagan Ritual to Party Night) Aðrar heimildir segja að luktirnar hafi verið notaðar til að halda illum öndum í burtu. Á 19. öld í Norður-Ameríku var farið að nota grasker í staðinn fyrir rófur, bæði vegna þess að mikið var til af þeim og auðvelt að hola þau að innan og rista í þau.

 Skiptir heiðinn uppruni hrekkjavökunnar máli?

 Já. Þó svo að sumum finnist hrekkjavakan saklaus skemmtun þá stangast siðir hennar algerlega á við kenningar Biblíunnar. Hrekkjavakan er byggð á falskenningum um dauðann og ósýnilega anda eða djöfla.

 Taktu eftir því hvað eftirfarandi vers sýna okkur um viðhorf Guðs til trúarskoðana sem tengjast hrekkjavöku:

  •   „Á meðal ykkar má enginn finnast sem … leitar ráða hjá öndum … enginn sem leitar úrskurðar hjá framliðnum.“ – 5. Mósebók 18:10–12, Biblían 2010

     Hvað þýðir það? Að Guð er andsnúinn því að menn hafi samband við hina dánu og jafnvel því að menn þykist gera það.

  •   „Hinir dánu vita ekki neitt.“ – Prédikarinn 9:5.

     Hvað þýðir það? Fyrst hinir dánu vita ekki neitt, geta þeir ekki haft samband við hina lifandi.

  •   ,Hafið ekki samfélag við illa anda. Ekki getið þið drukkið bikar Drottins og bikar illra anda.‘ – 1. Korintubréf 10:20, 21, Biblían 2010

     Hvað þýðir það? Þeir sem vilja hafa velþóknun Guðs þurfa að forðast hvers kyns tengsl við illa anda.

  •   ,Standist slóttugar árásir Djöfulsins því að baráttan sem við eigum í er við andaverur vonskunnar.‘ – Efesusbréfið 6:11, 12.

     Hvað þýðir það? Að kristnir menn þurfa að standa gegn illum andaverum í stað þess að þykjast vera í veislu með þeim.

a Sjá bókina Halloween: An American Holiday, an American History, bls. 4.