Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

1. LÆRDÓMUR

Kostir þess að læra sjálfstjórn

Kostir þess að læra sjálfstjórn

HVAÐ ER SJÁLFSTJÓRN?

Sjálfstjórn er að geta ...

  • beðið með að fullnægja löngunum sínum.

  • stjórnað eigin hvötum.

  • klárað leiðinleg verkefni.

  • tekið aðra fram yfir sjálfan sig.

HVERS VEGNA ER SJÁLFSTJÓRN MIKILVÆG?

Börn sem hafa góða sjálfstjórn geta neitað sér um eitthvað þó að þeim finnist það freistandi. Aftur á móti eru börn sem skortir sjálfstjórn líklegri til að ...

  • sýna af sér árásargirni.

  • þjást af þunglyndi.

  • reykja, neyta fíkniefna eða misnota áfengi.

  • venja sig á slæmt mataræði.

Könnun ein leiddi í ljós að þeir sem hafa tamið sér sjálfstjórn á barnsaldri glími síður við heilsuvandamál eða fjárhagserfiðleika og komist síður í kast við lögin en þeir sem skortir sjálfsstjórn. Angela Duckworth, prófessor við háskólann í Pennsylvaníu, sagði í kjölfar könnunarinnar: „Kannski er ekkert sem heitir að hafa ,of mikla‘ sjálfstjórn.“

HVERNIG ER HÆGT AÐ KENNA SJÁLFSTJÓRN?

Lærðu að segja nei og standa við það.

MEGINREGLA: „Þegar þér talið sé já yðar já og nei sé nei.“ – Matteus 5:37.

Börn gætu látið reyna á ákvörðun foreldra sinna með frekjukasti – jafnvel á almannafæri. Ef foreldrið gefur eftir lærir barnið að frekjuköst séu áhrifarík leið til að breyta neii í já.

En ef foreldrið segir nei og stendur við það lærir barnið að við getum ekki alltaf fengið það sem við viljum. „Þó að það hljómi einkennilega virðist vera að fólk sem lærir þetta sé hvað ánægðast,“ segir dr. David Walsh. „Við gerum börnum okkar ekki greiða með því að kenna þeim að heimurinn veiti þeim alltaf á silfurfati allt sem þau vilja.“ *

Ef þú neitar barninu þínu um eitthvað núna auðveldarðu því að neita sjálfu sér um eitthvað síðar á ævinni – til dæmis fíkniefni, að hafa kynmök fyrir hjónaband eða taka þátt í einhverju öðru sem gæti skaðað það eða aðra.

Hjálpaðu börnunum að skilja að bæði góð og slæm hegðun hefur afleiðingar.

MEGINREGLA: „Það sem maður sáir, það mun hann og uppskera.“ – Galatabréfið 6:7.

Barnið þitt þarf að skilja að gerðir þess hafa afleiðingar og að skortur á sjálfstjórn hafi slæmar afleiðingar. Tökum dæmi: Ef sonur þinn missir oft stjórn á sér þegar hann kemst í uppnám gætu aðrir forðast hann. Ef hann temur sér aftur á móti að sýna sjálfstjórn þegar honum er ögrað – eða bíða þolinmóður í stað þess að grípa fram í – laðast fólk að honum. Kenndu barninu að það er líklegra til að njóta velgengni ef það lærir að sýna sjálfstjórn.

Kenndu barninu að forgangsraða.

MEGINREGLA: „Metið þá hluti rétt sem máli skipta.“ – Filippíbréfið 1:10.

Sjálfstjórn felur ekki bara í sér að halda aftur af sér að gera eitthvað rangt heldur líka að gera það sem þarf, jafnvel þegar það er ekki sérstaklega spennandi eða skemmtilegt. Það er mikilvægt fyrir barnið að læra að meta hvað skipti mestu máli og að sinna því fyrst. Til dæmis ætti það að læra heima áður en það leikur sér.

Vertu góð fyrirmynd.

MEGINREGLA: „Ég hef gefið yður eftirdæmi að þér breytið eins og ég breytti við yður.“ – Jóhannes 13:15.

Barnið tekur eftir hvernig þú bregst við gremjulegum aðstæðum. Sýndu með fordæmi þínu að sjálfstjórn borgar sig. Hvernig bregst þú til dæmis við þegar barnið þitt reynir á þolinmæði þína? Reiðistu eða heldurðu rónni?

^ gr. 20 Úr bókinni No: Why Kids – of All Ages – Need to Hear It and Ways Parents Can Say It.