Opinberunarbókin 20:1–15

  • Satan bundinn um 1.000 ár (1–3)

  • Þeir sem ríkja með Kristi í 1.000 ár (4–6)

  • Satan leystur og síðan eytt (7–10)

  • Hinir dánu dæmdir frammi fyrir hvíta hásætinu (11–15)

20  Ég sá engil stíga niður af himni með lykil undirdjúpsins og mikla fjötra í hendi sér.  Hann tók drekann, hinn upphaflega höggorm sem er Djöfullinn og Satan, og batt hann um 1.000 ár.  Hann kastaði honum í undirdjúpið, lokaði því og innsiglaði svo að hann afvegaleiddi ekki þjóðirnar lengur, ekki fyrr en 1.000 árin væru liðin. Eftir það verður hann leystur um stuttan tíma.  Og ég sá hásæti, og þeim sem sátu í þeim var gefið vald til að dæma. Já, ég sá sálir* þeirra sem höfðu verið líflátnir* fyrir að vitna um Jesú og tala um Guð, þá sem höfðu ekki tilbeðið villidýrið eða líkneski þess og höfðu ekki fengið merkið á enni sér og hönd. Þeir lifnuðu við og ríktu sem konungar með Kristi í 1.000 ár.  Þetta er fyrri upprisan. (Hinir sem voru dánir lifnuðu ekki við fyrr en 1.000 árin voru liðin.)  Allir sem eiga hlut í fyrri upprisunni eru hamingjusamir og heilagir. Hinn annar dauði hefur ekkert vald yfir þeim. Þeir verða prestar Guðs og Krists og munu ríkja sem konungar með honum í 1.000 ár.  Um leið og 1.000 árin eru liðin verður Satan leystur úr fangelsi sínu  og hann fer út til að afvegaleiða þjóðirnar sem eru á fjórum hornum jarðar, Góg og Magóg, og safna þeim saman til stríðsins. Fjöldi þeirra er eins og sandkorn sjávarins.  Þær sóttu fram um alla jörðina og umkringdu herbúðir hinna heilögu og borgina elskuðu. En eldur kom af himni og eyddi þeim. 10  Og Djöflinum, sem afvegaleiddi þær, var kastað í haf elds og brennisteins þar sem bæði villidýrið og falsspámaðurinn voru fyrir. Þau verða kvalin* dag og nótt um alla eilífð. 11  Síðan sá ég mikið hvítt hásæti og þann sem sat í því. Jörðin og himinninn flúðu frá honum og fundust hvergi framar. 12  Og ég sá hina dánu, jafnt háa sem lága, standa frammi fyrir hásætinu og bókrollur voru opnaðar. En önnur bókrolla var opnuð, bók lífsins. Hinir dánu voru dæmdir eftir því sem stóð í bókrollunum, samkvæmt verkum sínum. 13  Hafið skilaði hinum dánu sem voru í því og dauðinn og gröfin* skiluðu hinum dánu sem voru í þeim, og hver og einn var dæmdur samkvæmt verkum sínum. 14  Dauðanum og gröfinni* var kastað í eldhafið en eldhafið táknar hinn annan dauða. 15  Öllum sem voru ekki skráðir í bók lífsins var einnig kastað í eldhafið.

Neðanmáls

Sjá orðaskýringar og Op 6:9, neðanmáls.
Orðrétt „líflátnir með öxi“.
Eða „í haldi; í fangelsi“.
Eða „Hades“, það er, sameiginleg gröf mannkyns. Sjá orðaskýringar.
Eða „Hades“, það er, sameiginlegri gröf mannkyns. Sjá orðaskýringar.