Jesaja 35:1–10

  • Paradís endurreist (1–7)

    • Blindir sjá og heyrnarlausir heyra (5)

  • Vegurinn heilagi handa hinum endurleystu (8–10)

35  Óbyggðirnar og skrælnað landið munu fagna,eyðisléttan gleðjast og blómstra eins og saffrankrókus.*   Hún blómstrar ríkulega,hún fagnar og hrópar af gleði. Dýrð Líbanons veitist henni,tign Karmels og Sarons. Menn sjá dýrð Jehóva, tign Guðs okkar.   Styrkið máttvana hendurog styðjið skjögrandi hné.   Segið hinum kvíðnu: „Verið hugrökk og hræðist ekki. Guð ykkar kemur fram hefndum,hann kemur og endurgeldur óvinum ykkar. Guð kemur og frelsar ykkur.“   Þá munu augu blindra opnastog eyru heyrnarlausra ljúkast upp.   Þá stekkur hinn halti eins og hjörturog tunga hins mállausa hrópar af gleði. Vatn sprettur fram í óbyggðunumog ár streyma um eyðisléttuna.   Sviðin jörðin verður að seftjörnog þyrst jörðin að uppsprettum. Þar sem sjakalar hafast viðmun vaxa grængresi, reyr og papýrus.   Þar verður breiður vegursem kallast Vegurinn heilagi. Enginn óhreinn mun ferðast þar um. Vegurinn er ætlaður þeim sem ganga á honum. Enginn óskynsamur fer inn á hann.   Engin ljón verða þarog engin hættuleg villidýr fara um hann,þau sjást ekki þar. Aðeins hinir endurleystu ganga þar. 10  Þeir sem Jehóva hefur endurleyst snúa aftur og koma fagnandi til Síonar. Óendanleg gleði prýðir höfuð þeirra. Fögnuður og gleði fylgir þeimen sorg og andvörp flýja.

Neðanmáls

Eða „krókus“.