Bréfið til Hebrea 5:1–14

  • Jesús æðri mennskum æðstuprestum (1–10)

    • Á sama hátt og Melkísedek (6, 10)

    • Lærði hlýðni af þjáningum sínum (8)

    • Ábyrgur fyrir eilífri frelsun (9)

  • Varað við óþroska (11–14)

5  Sérhver æðstiprestur sem er valinn úr hópi manna er skipaður til að þjóna Guði í þeirra þágu og færa fórnargjafir og sláturfórnir fyrir syndir.  Hann getur haft meðaumkun með* þeim sem eru fáfróðir og verður eitthvað á* því að hann þarf sjálfur að glíma við* veikleika  og þarf þess vegna að færa fórnir fyrir sínar eigin syndir rétt eins og hann færir fórnir fyrir syndir fólksins.  Enginn tekur sér þennan heiður að eigin frumkvæði. Hann fær hann aðeins ef Guð kallar hann eins og hann kallaði Aron.  Eins er um Krist. Hann tók sér ekki sjálfur þann heiður að gerast æðstiprestur heldur hlaut upphefð af hendi hans sem sagði við hann: „Þú ert sonur minn, í dag varð ég faðir þinn.“  Hann segir líka á öðrum stað: „Þú ert prestur að eilífu á sama hátt og Melkísedek.“  Meðan Kristur var á jörð* bar hann fram innilegar bænir og beiðnir með áköllum og tárum fyrir hann sem var fær um að bjarga honum frá dauða og hann var bænheyrður vegna guðsótta síns.  Þótt hann væri sonur hans lærði hann hlýðni af þeim þjáningum sem hann gekk í gegnum.  Og eftir að hann var orðinn fullkominn varð hann ábyrgur fyrir eilífri frelsun allra sem hlýða honum 10  vegna þess að Guð útnefndi hann til að vera æðstiprestur á sama hátt og Melkísedek. 11  Við höfum margt um hann að segja en það er erfitt að útskýra það fyrir ykkur þar sem þið eruð orðin skilningssljó. 12  Þó að þið ættuð að vera orðin* kennarar hafið þið aftur þörf á að einhver kenni ykkur grundvallaratriði hins heilaga boðskapar Guðs. Ykkur hefur farið aftur svo að þið þurfið enn á ný að fá mjólk en ekki fasta fæðu. 13  Sá sem heldur áfram að nærast á mjólk er smábarn og þekkir ekki orð réttlætisins. 14  En fasta fæðan er fyrir þroskað fólk, fyrir þá sem hafa notað skilningsgáfuna* og þjálfað hana til að greina rétt frá röngu.

Neðanmáls

Eða „verið mildur við; verið sanngjarn við“.
Eða „villuráfandi“.
Eða „er sjálfur á valdi eigin“.
Orðrétt „Á dögum holds síns“.
Orðrétt „ættuð tímans vegna að vera“.
Eða „dómgreindina“.