Hoppa beint í efnið

Eru Vottar Jehóva amerískur sértrúarhópur?

Eru Vottar Jehóva amerískur sértrúarhópur?

 Höfuðstöðvar okkar eru í Bandaríkjum en við erum þó ekki amerískur sértrúarhópur. Ástæðurnar eru eftirfarandi:

  •   Sértrúarhópar eru oft hópar sem hafa klofið sig frá stærri kirkjudeildum. Vottar Jehóva eru hins vegar ekki klofningshópur frá öðru trúfélagi heldur teljum við okkur hafa endurvakið kristnina eins og hún var iðkuð á fyrstu öldinni.

  •   Vottar Jehóva starfa núna í meira en 230 löndum. Hvar sem við búum er hollusta okkar fyrst og fremst bundin Jehóva Guði og Jesú Kristi en ekki ríkisstjórn Bandaríkjanna eða nokkurri annarri ríkisstjórn manna. – Jóhannes 15:19; 17:15, 16.

  •   Við byggjum allar kenningar okkar á Biblíunni en ekki ritum einhvers trúarleiðtoga í Bandaríkjunum. – 1. Þessaloníkubréf 2:13.

  •   Við fylgjum Jesú Kristi en ekki einhverjum jarðneskum leiðtoga. – Matteus 23:8-10.